Útskrift 10. bekkjar

Í dag kvöddum við fríðan hóp nemenda sem voru að ljúka 10. bekk og þar með grunnskólanum sínum og mörg þeirra búin að vera í Sæmundarskóla frá 6 ára aldri. Þetta var skemmtileg og hátíðleg stund þar sem við fengum að hlýða á fallegt tónlistaratriði og skemmtilegar ræður frá skólastjóra, nemendum og kennurum. En nú halda krakkarnir fullir tilhlökkunar á vit nýrra ævintýra og áskorana. Takk fyrir samveruna kæru nemendur, við söknum ykkar nú þegar. Megi þið eiga bæði bjarta og gleðiríka framtíð. Fleiri myndir er að finna hér