Upplestrarkeppni Sæmundarskóla

Skólahátíð stóru upplestrarkeppninnar fór fram í vikunni. Þar lásu 12 nemendur 7. bekkjar sögubrot og ljóð og stóðu sig með mikilli prýði. Tveir nemendur voru valdir til að taka þátt í lokahátíðinni sem fram fer í Guðríðarkirkju 5. mars og það eru þau Katla Björt Kristinsdóttir og Óskar Breki Bjarkason. Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir var valin til að vera varamaður.
Við óskum þessum flottu krökkum til hamingju með góðan árangur. Fullt af myndum í myndasafninu : )